Íþróttir & heilsa Snyrtivörur Dr. Bragi
skoðað 256 sinnum

Dr. Bragi

Verð kr.

7.500 kr
1

Fjöldi

 
 
Við mælum með
  • 14 vaxtalaus greiðslufrestur
  • Raðgreiðslur mögulegar
  • Kaupendatrygging Blands
Nýskrá á Netgíró

Rennur út

þriðjudagur, 18. júní 2024 17:05

Tegund Húð

* 2 x Age Management - rakaserum

Age Management Moisturiser serumið er fyrsta varan á markað frá DrBRAGA og tvímælalaust flaggskipið í vörulínunni okkar. Ofurvirk sjávarensím eru aðalsmerki þessa serums auk hyaluronic sýru sem gefur húðinni aukna fyllingu og fullnægjandi raka. Fjölhæfni þessa raka serums dregur úr öldrun húðarinnar með því að koma í veg fyrir minnkun kollagens og leiðir þannig til hámarks starfsemi húðfrumnanna.

Þetta einstaka olíulausa raka serum bæði nærir húðina og kemur jafnvægi á rakastig hennar á meðan sjávarensímin vinna að því að mýkja og hreinsa húðina innan frá. Virkni ensímanna hjálpa húðinni að bæði endurnýja og betrumbæta sig og þannig fær húðin öll bjartara yfirbragð. Fínar línur verða mun minna sjáanlegar, húðin verður stinnari, heilbrigðari og fallegri ásamt því að dökkir blettir og hinir ýmsu húðkvillar verða mildari.

Neytendakönnun framkvæmd af 100 sjálfboðaliðum í Bretlandi sem notuðu Age Management Moisturiser í 3 vikur sýndi fram á eftirfarandi niðurstöður:

96% notenda voru sammála um að húðin væri mýkri
93% tóku eftir umtalsverðum ábáta af notkun
91% sögðu að rakastig húðarinnar hefði aukist
88% voru sammála um að varan hefði bætt þéttleika húðarinnar
88% voru sammála um að húðin væri sýnilegri unglegri eftir notkun
86% voru sammála um að varan gæfi húðinni jafnari yfirbragð
84% sögðu að ljómi húðarinnar hefði aukist

*1 x Face and Body raki

Þægilegur rakaúði sem heldur húðinni einstaklega mjúkri og gerir hana þægilega viðkomu þar sem sjávarensím endurnæra og örva endurnýjun húðarinnar á öllum líkamanum. Hentar sérstaklega vel fyrir svæði þar sem húðin vill gjarnan slakna og sýna litabreytingar, svo sem á hálsi og á bringu. Rakaúðinn vinnur að auki mjög vel á svæðum þar sem húðin vill endurtekið verða þurr og hörð og jafnvel flagna eins og á olnbogum og iljum. Úðinn hefur góð áhrif á svæði þar sem bólur myndast gjarnan, svo sem á bakinu, og hann dregur úr ertingu sem kann að verða eftir vaxmeðferð og/eða rakstur þar sem úðinn róar húðina og dregur þannig úr líkum á inngrónum hárum. Rakaúðinn hentar líka einstaklega vel eftir alla útiveru og þá sérstaklega útiveru í sól þar sem sjávarensímin hjálpa húðinni að viðhalda raka og dregur þannig úr líkum á að húðin þorni eða flagni. Með reglulegri notkun á rakaúðanum verður húðin öll mýkri, stinnari og jafnvægi kemst á rakastig hennar. Tilvalið er að setja rakaúðann á allan líkamann eftir bað eða sturtu í staðin fyrir húðkrem.

Aðrar vörur gefins með.